A.13. Starfsþróun starfsfólks leik- og grunnskóla
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Ólafur Grétar Kristjánsson, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu - [email protected]
Hulda Anna Arnljótsdóttir, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið - [email protected]
Fréttir
27.01.23 Samstarfshópur um framhaldsfræðslu hefur störf
12.01.23 Yfir milljarði úthlutað til aukins samstarfs háskóla - Fagmenntuðu leikskólastarfsfólki fjölgað og fjarnám eflt
07.11.22 Ný tækifæri fyrir fólk með stutta skólagöngu
06.10.22 Viljayfirlýsing um fagháskólanám í leikskólafræðum undirrituð
Verkefnið
Markmið: Að fagháskólanámi í leikskólafræðum verði komið á fót og það fest í sessi í öllum landshlutum og íslenskukunnátta starfsfólks leikskóla sem ekki hefur íslensku að móðurmáli verði efld.
Stutt lýsing: Aðgerðin verði tvíþætt. Annars vegar að til að koma í veg fyrir kennaraskort og auka nýliðun verði starfsfólki leikskóla sem ekki uppfyllir inntökuskilyrði til há¬skóla¬náms boðið tækifæri til aðfaranáms að háskólanámi í leikskólafræðum sem jafnframt teldist vera fyrstu skref í háskólanámi. Áhersla verði lögð á að sveitarfélögin veiti sínu starfsfólki stuðning við upphaf námsins. Skoðað verði að koma á fót raunfærnimati til að fá inngöngu í nám í leikskólafræði. Hins vegar verði stefnt að því að starfsfólk leik- og grunnskóla sem ekki hefur íslensku að móðurmáli fái tækifæri til að efla íslenskukunnáttu sína svo að það nái færni B samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.Námið verði sniðið að þörfum þess og hægt verði að stunda það jafnhliða starfi, m.a. með fjarnámi og stafrænu námsefni. Árangur aðgerðarinnar verði m.a. mældur í fjölda þeirra sem sækja námið.
- Ábyrgð: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
- Framkvæmdaraðili: Háskólar, sveitarfélög og fræðsluaðilar.
- Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Fjölmenningarsetrið og stéttarfélög ófaglærðra starfsmanna leik- og grunnskóla.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menntastefna, þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál, þingsályktun um barnvænt Ísland.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 4.
- Tillaga að fjármögnun: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið