Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2005 Forsætisráðuneytið

A-202/2005 Úrskurður frá 11. apríl 2005

ÚRSKURÐUR

Hinn 11. apríl 2005 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu nr. A-202/2005:

Kæruefni

Með bréfi, dagsettu 8. mars s.l., kærði […] synjun yfirdýralæknis, dagsetta 3. s.m., um að veita umbjóðendum hans aðgang að skjali, „athugasemdum á blaði", sem fylgdi skýrslu um sláturhús [A] frá 8. ágúst 2004. Skýrsluna hafði yfirdýralæknir afhent kærendum 12. febrúar 2005 í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 26. janúar 2005 í máli nr. A-196/2005.

Með bréfi, dagsettu 18. mars s.l., var kæran kynnt yfirdýralækni og honum veittur frestur til að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni til kl. 16.00 hinn 1. apríl s.l. Jafnframt var þess óskað að hann léti nefndinni í té í trúnaði afrit af þeim gögnum sem kæran lyti að.

Umsögn yfirdýralæknis um kæruna, dagsett 29. mars 2005, barst hinn 1. apríl 2005. Henni fylgdu umræddar „athugasemdir á blaði" dagsettar 6. ágúst 2004, sama dag og skýrslan um sláturhúsið.

Málsatvik

Samkvæmt gögnum málsins eru atvik þess í stuttu máli þau að 12. febrúar s.l. sendi yfirdýralæknir umboðsmanni kærenda afrit af skýrslum um sláturhús og kjötfrystihús [A] í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 26. janúar s.l. í máli nr. A-196/2005. Skýrslur þessar eru samtals 3 bls. og í skýrslunni um sláturhús er vísað í „meðfylgjandi athugasemdir" eða „meðfylgjandi blað". 25. febrúar s.l. fór umboðsmaður kærenda fram á það við yfirdýralækni að fá einnig aðgang að þessum athugasemdum sem vísað væri til í skýrslunni um sláturhús [A] enda væru þær hluti skýrslunnar.

Með bréfi til umboðsmanns kærenda, dagsettu 3. mars s.l., synjaði yfirdýralæknir beiðni kærenda með vísan til þess að í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál í máli nr. A-196/2005 væri einungis kveðið á um aðgang að skýrslunum sjálfum. Teldi hann sig hafa fullnægt úrskurðinum með því að afhenda skýrslurnar.

Með bréfi dags. 8. mars s.l. kærði umboðsmaður kærenda þessa synjun til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Er því hafnað að eitthvað í skjalinu falli undir undanþáguákvæði upplýsingalaga nr. 50/1996. Ljóst sé með tilliti til úrskurðar úrskurðarnefndarinnar frá 26. janúar 2005 að mikilvægir fjárhags- eða viðskiptahagsmunir, sbr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, geti ekki leitt til þess að synjun sé heimil. Jafnvel þótt umbeðið skjal kynni að falla undir 5. grein upplýsingalaga hlutrænt séð, þá beri að líta svo á að hagsmunir almennings af aðgangi vegi þyngra.

Í símbréfi [A] til úrskurðarnefndar dags. 20. janúar s.l., sem sent var vegna meðferðar úrskurðarnefndar á kæru í máli A-196/2005, er staðfest að sláturhús félagsins á [X] hafi verið úrelt og að ekki verði slátrað þar oftar. Á hinn bóginn leggur félagið ríka áherslu á að eftirlitsheimildum hins opinbera þurfi að fylgja rík trúnaðarskylda. Upplýsingar sem aflað sé í þágu opinbers eftirlits beri því að fara með sem trúnaðarmál og eingöngu nýta í því skyni. Í samræmi við það lýsir félagið sig algerlega mótfallið því að upplýsingum sem embætti yfirdýralæknis hafi aflað í eftirlitsskyni verði miðlað til annarra, þ. á m. keppinauta þess. Ekki þótti ástæða til að leita aftur álits [A] á því hvort afhenda mætti athugasemdirnar sem fylgdu skýrslunni um sláturhúsið á [X].

Aðilar máls þessa hafa fært frekari rök fyrir kærunni annars vegar og hinni kærðu ákvörðun hins vegar. Með vísun til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verður ekki gerð frekari grein fyrir þessum röksemdum í úrskurði þessum, en úrskurðarnefnd hefur haft þær til hliðsjónar við úrlausn málsins.

 

Niðurstaða

Kærendur hafa óskað eftir aðgangi að athugasemdum sem fylgdu skoðunarskýrslu yfirdýralæknis vegna sláturhúss á [..]. Fyrir liggur að skoðun fór fram hinn 6. ágúst 2004 og voru skýrslur gerðar af því tilefni um sláturhús og kjötfrystihús. Til úrlausnar er hvort kærendur eigi rétt á aðgangi að athugasemdum sem fylgdu annarri af þessum skýrslum.

Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. upplýsingalaga er stjórnvöldum skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.–6. gr. laganna. Samkvæmt síðari málsl. 5. gr. upplýsingalaga er óheimilt að veita almenningi aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskipta-hagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila, sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki, er í hlut á. Í athugasemdum við 5. gr. Frumvarps þess er varð aðupplýsingalögum segir m.a. svo um þetta ákvæði:

„Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila. Þannig er óheimilt að veita upplýsingar um atvinnu-, framleiðslu- og viðskiptaleyndarmál eða viðkvæmar upplýsingar um rekstrar- eða samkeppnisstöðu svo og aðra mikilvæga viðskiptahagsmuni."

Samkvæmt 2. og 3. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 461/2003, um slátrun og meðferð sláturafurða, skulu héraðsdýralæknar árlega skoða ítarlega húsnæði og búnað sláturhúsa, kjötpökkunarstöðva, kjötfrystihúsa, kjötvinnslustöðva og dreifistöðva, meðferð á afurðunum, innra eftirlit og annað sem yfirdýralæknir gefur fyrirmæli um og skila ítarlegri skýrslu um skoðun sína til eiganda fyrirtækisins og yfirdýralæknis. Af 4. mgr. sömu greinar má ráða að eftirlit þetta fari fram til að ganga úr skugga um að starfsemin á viðkomandi stað uppfylli enn skilyrði löggildingar.

Jafnvel þótt upplýsingar, sem aflað er um ástand slíkra húsa í þessu skyni, geti varðað mikilvæga viðskiptahagsmuni þeirra er hlut eiga að máli gera upplýsingalögin ráð fyrir að það sé metið í hverju og einu tilviki. Í athugasemdum við II. kafla frumvarps þess er varð að upplýsingalögum segir svo:

„Aðgangur almennings að upplýsingum verður almennt ekki takmarkaður á grundvelli ákvæða 5.-6. gr. nema að undangengnu mati stjórnvalds á því hvort hætta sé á að þeir hagsmunir, sem þar eru tilgreindir, skaðist ef upplýsingar eru veittar."

Þegar til þess er litið að ekki verður framar slátrað í því húsi, sem hér er um að ræða, verða upplýsingar um ástand þess vart taldar til þess fallnar að skaða þá hagsmuni, sem verndaðir eru af síðari málslið 5. gr. upplýsingalaga, eftir að starfsemi þar er hætt.

Úrskurðarnefnd hefur einnig kynnt sér efni þeirra athugasemda sem kærendur hafa óskað eftir aðgangi að. Að áliti hennar er þar ekki að finna neinar þær upplýsingar um fjárhags- eða viðskiptahagsmuni er réttlæti samkvæmt framansögðu að synja kærendum um aðgang að þeim. Að þessu athuguðu eru ekki að lögum skilyrði til að takmarka aðgang að framangreindum athugasemdum.

 

Úrskurðarorð:

Yfirdýralæknir skal veita kærendum, [..]., aðgang að athugasemdum, sem fylgdu skýrslu um sláturhús að [X], dagsettum 6. ágúst 2004.

 

 

Páll Hreinsson, formaður

Friðgeir Björnsson

Sigurveig Jónsdóttir



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum