Hoppa yfir valmynd
21. september 2022 Forsætisráðuneytið

1093/2022. Úrskurður frá 29. ágúst 2022

Hinn 29. ágúst 2022 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1093/2022 í máli ÚNU 22070015.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 14. júlí 2022, kærði A til úrskurðarnefndar um upplýsingamál töf á afgreiðslu skrifstofu Alþingis á beiðni um aðgang að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um fram­kvæmda- og rekstrarkostnað Landeyjahafnar, sem kynnt var á fundi stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar á Alþingi hinn 13. júní 2022.

Eins og mál þetta er vaxið taldi úrskurðarnefndin óþarft að kynna kæruna skrifstofu Alþingis og veita kost á að koma á framfæri umsögn um kæruna, sbr. 2. mgr. 22. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga taka lögin til allrar starfsemi stjórnvalda. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að undir ákvæðið falli einungis þeir aðilar sem falið er að fara með stjórnsýslu og teljist til handhafa framkvæmdarvalds í ljósi þrískiptingar ríkisvaldsins. Með lögum nr. 72/2019 um breytingu á upplýsingalögum var bætt við ákvæði í 4. mgr. 2. gr. laganna, þar sem segir eftirfarandi:

Lög þessi taka til stjórnsýslu Alþingis eins og nánar er afmarkað í lögum um þingsköp Alþingis og reglum forsætisnefndar sem settar eru á grundvelli þeirra. [...] Ákvæði V.–VII. kafla taka ekki til Alþingis eða stofnana þess.

Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 72/2019 kemur fram að tilgangur ákvæðis­ins hafi verið að víkka út upplýsingarétt almennings yfir þá starfsemi handhafa löggjafarvalds sem ætti hvað mest skylt við stjórnsýslu, til að mynda ráðstöfun fjárveitinga, innkaup og önnur fjármál, starfs­mannahald, símenntun og þjónustu, upplýsinga- og tæknimál og önnur atriði sem falla undir hug­takið rekstur í víðum skilningi. Hins vegar væri gert ráð fyrir að Alþingi sjálft myndi með reglum sem forsætisnefnd setti á grundvelli laga um þingsköp Alþingis skilgreina hvaða gögn vörðuðu stjórn­sýslu Alþingis og hvaða gögn vörðuðu starfsemi Alþingis sem fulltrúasamkomu. Reglur forsætis­nefnd­ar eru aðgengilegar á vef Alþingis.

Í framangreindri 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga kemur fram í niðurlagi að ákvæði V.–VII. kafla laganna taki ekki til Alþingis eða stofnana þess. Ákvæði um úrskurðarnefnd um upplýsingamál, þar á meðal um kæruheimild til nefndarinnar, er að finna í V. kafla laganna. Það er því ljóst að ákvarðanir Alþingis sæta ekki kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Því er óhjákvæmilegt að vísa kærunni frá nefndinni. Úrskurðarnefndin vekur þó athygli kæranda á því að stjórnsýsluúttekt Ríkis­endur­skoðunar sem kærandi hefur óskað eftir er aðgengileg í heild sinni á vef Ríkisendurskoðunar.

Úrskurðarorð

Kæru A, dags. 14. júlí 2022, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Hafsteinn Þór Hauksson, formaður
Kjartan Bjarni Björgvinsson
Sigríður Árnadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum