Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2012 Forsætisráðuneytið

A-458/2012. Úrskurður frá 22. nóvember 2012.

ÚRSKURÐUR

 

Hinn 22. nóvember 2012 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu A-458/2012.

 

Kæruefni


Með bréfi til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, dags. 9. mars 2012, kærði [A] lögfræðingur ákvarðanir Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 10. og 16. febrúar 2012, um að synja aðgangi að skýrslum nokkurra nafngreindra einstaklinga í skjalasafni rannsóknarnefndar Alþingis. Nánar tiltekið er um að ræða eftirfarandi skýrslur:          

 

1. Skýrslu [B], frá 7. júlí 2009.

2. Skýrslu [C], frá 8. október 2009.

3. Skýrslu [D] og [E], frá 4. september 2009.

4. Skýrslu [F], frá 7. október 2009.

5. Skýrslu [G], frá 21. júlí 2009.

6. Skýrslu [H], frá 7. september 2009.

7. Skýrslu [I], frá 10. september 2009.

8. Skýrslu [J], frá 21. október 2009.

9. Skýrslur [K], frá 8. og 14. júlí 2009.

10. Skýrslur [L], frá 22. janúar og 7. febrúar 2010.

11. Skýrslu [M], frá 21. október 2009.

 

Málsatvik


Atvik málsins eru þau að með bréfi til Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 4. nóvember 2011, óskaði kærandi eftir aðgangi að öllum gögnum og skjölum sem tengdust Kaupþingi, hvort heldur þau væru á rafrænu eða prentuðu formi, sem rannsóknarnefnd Alþingis aflaði og/eða hafði undir höndum í tengslum við gerð skýrslu sinnar sem skilað var 12. apríl 2010.

 

Í bréfi kæranda til þjóðskjalasafnsins kom fram að nánar tiltekið væri óskað eftir aðgangi að  skýrslum sem nefndin hefði tekið af stjórnendum og starfsmönnum Kaupþings og eftir atvikum öðrum aðilum þar sem Kaupþing hefði verið til umræðu, tölvupóstsamskiptum og öðrum skriflegum samskiptum hvort heldur innbyrðis eða við aðra aðila, fundargerðir stjórnar Kaupþings og nefnda bankans, þ. á m. lánanefnda Kaupþings, lánasamningum, minnisblöðum, lögfræðiálitum, skýrslum endurskoðenda, lausafjárskýrslum o.fl. er við kæmi bankanum. Í viðhengjum við bréfið voru nánar tilgreind gögn sem óskað var aðgangs að.

 

Í beiðni kæranda var vísað til 3. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, 9. gr. laga nr. 66/1985, um þjóðskjalasafn, og 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Jafnframt var vísað til þess að þær upplýsingar sem vísað væri til og birtar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis væru þess eðlis að trúnaðarreglur og þagnarskylda giltu ekki um upplýsingarnar, burtséð frá því hvort slíkar reglur eða skuldbindingar hefðu á einhverjum tímapunkti hvílt á upplýsingunum eða bankanum. Ennfremur var m.a. bent á að Kaupþing væri undir stjórn skilanefndar og hefði ekki fjárhagslega eða viðskiptalega hagsmuni af því að halda leyndum upplýsingum um atburði sem áttu sér stað fyrir október 2008.

 

Í beiðninni var einnig vísað til 7. gr. upplýsingalaga, um aðgang að hluta skjals, innihéldi hluti gagnanna upplýsingar sem féllu undir þagnarskyldu, t. a. m. skv. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

 

Að lokum var þess óskað að Þjóðskjalasafn Íslands tilkynnti hvenær gera mætti ráð fyrir því að gögnin yrðu gerð aðgengileg. Í bréfinu sagði svo orðrétt:

 

„Til þess að hraða viðbrögðum og með hliðsjón af 9. gr. laga nr. 37/1993, er ekki óskað eftir einu heildarsvari vegna allra tilgreindra skjala, heldur, eftir því sem Þjóðskjalasafnið tekur ákvörðun um hóp skjala og/eða um einstakt skjal, að slík ákvörðun verði gerð undirrituðum kunn við fyrsta tækifæri.“

 

Þjóðskjalasafn Íslands afgreiddi beiðni kæranda í þremur hlutum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur þegar fjallað um fyrstu afgreiðslu Þjóðskjalasafns Íslands þar sem tilkynnt var um synjun beiðninnar að því er varðaði skýrslur fimm nafngreindra einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Vísast um þetta til úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 18. júní 2012 í máli nr. A-419/2012. Eins og rakið er hér í upphafi lítur þessi úrskurður að tveimur seinni afgreiðslum þjóðskjalasafnsins á beiðni kæranda, sbr. bréf safnsins dags. 10. og 16. febrúar 2012.

 

Afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 10. febrúar 2012, laut að skýrslum þeirra [M], [D], [E], [L] og [J].

 

Í ákvörðun safnsins er vísað til úrskurðar úrskurðarnefndar um upplýsingamál í málum nr. A-387/2011 og A-398/2011. Síðan segir m.a.:

 

„Um skýrslurnar er það að segja að Þjóðskjalasafn fór ítarlega yfir þær og voru fyrrnefndir úrskurðir úrskurðarnefndar um upplýsingamál hafðir til hliðsjónar. Skýrslurnar eru mislangar, allt frá 7 blaðsíðum upp í 63 blaðsíður að lengd, og lúta að umtalsverðu leyti að viðskiptum Kaupþings banka hf. við aðila sem tilteknir eru í skýrslunum og umræddir starfsmenn höfðu aðkomu að. Að mati Þjóðskjalasafns er um að ræða viðskiptamenn bankans í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og upplýsingarnar sem þá varðar, þess efnis að þær falla undir framangreint þagnarskylduákvæði. Þá er í skýrslunum einnig upplýsingar sem lúta að innri starfsemi Kaupþings banka hf. og upplýsingar sem varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptalega hagsmuni bankans, sem Þjóðskjalasafn telur, með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, að takmarki upplýsingarétt vegna einkahagsmuna. Þótt efni skýrslnanna á einstökum stöðum falli ekki beint undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki eða ákvæði 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna, verður, í ljósi efnis skýrslnanna og þess samhengis sem þessir efnisþættir skapa milli þeirra efnisþátta sem lúta fyrrgreindum takmörkunum og þagnarskyldu, að líta svo á að þagnarskyldan og takmarkanir eigi við um skýrslurnar í heild sinni. Kemur því ekki til álita að veita aðgang að hluta skýrslnanna samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga.

 

Að þessu virtu og með vísan til 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 sem og 5. gr. sömu laga er Þjóðskjalasafni óheimilt að veita aðgang að umræddum skýrslum.

 

Með vísan til alls framangreinds er beiðni yðar um aðgang að ofangreindum skýrslum fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hafnað.“

 

Í bréfinu er því næst vakin athygli á kæruheimild til úrskurðarnefndar um upplýsingamál og tekið fram að yfirferð hinna skýrslnanna sé að mestu lokið og svars að vænta á næstu dögum.

 

Afgreiðsla Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 16. febrúar 2012, laut að skýrslum [H], [F], [I], [C], [B], [K] og [G].

 

Í bréfi safnsins til kæranda er, líkt og í bréfinu frá 10. febrúar, vísað til fyrri úrskurða úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Einnig er vísað til 5. mgr. 17. gr. og 18. gr. laga nr. 142/2008 um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Því næst segir orðrétt:

 

„Þar sem framangreindar skýrslur eru mjög sambærilegar að efni verður fjallað um þær í einu lagi. Um skýrslurnar er það að segja að Þjóðskjalasafn fór ítarlega yfir þær og voru fyrrnefndir úrskurðir úrskurðarnefndar um upplýsingamál hafðir til hliðsjónar. Skýrslurnar eru mislangar, allt frá 16 blaðsíðum upp í 130 blaðsíður að lengd. Upplýsingar í skýrslunum lúta að mestu leyti að innri starfsemi Kaupþings banka hf. og upplýsingar sem varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptalega hagsmuni bankans, sem Þjóðskjalasafn telur, með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, að takmarki upplýsingarétt vegna einkahagsmuna. Þá eru og upplýsingar á stöku stað sem varða einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem telja verður, með vísan til 5. gr. upplýsingalaga, sanngjarnt og eðlilegt að leynt fari. Loks lúta upplýsingar í skýrslunum að nokkru leyti að viðskiptum Kaupþings banka hf. við aðila sem tilteknir eru í skýrslunum og umræddir starfsmenn höfðu aðkomu að. Að mati Þjóðskjalasafns er um að ræða viðskiptamenn bankans í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og upplýsingar sem þá varðar, þess efnis að þær falla undir framangreint þagnarskylduákvæði sem Þjóðskjalasafni er óheimilt að veita aðgang að, sbr. 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktun frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Þótt efni skýrslnanna á einstökum stöðum falli ekki beint undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki eða ákvæði 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna, verður, í ljósi efnis skýrslnanna og þess samhengis sem þessir efnisþættir skapa milli þeirra efnisþátta sem lúta fyrrgreindum takmörkunum og þagnarskyldu, að líta svo á að þagnarskyldan og takmarkanir eigi við um skýrslurnar í heild sinni. Kemur því ekki til álita að veita aðgang að hluta skýrslnanna samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga.

 

Að þessu virtu og með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008, 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga er Þjóðskjalasafni óheimilt að veita aðgang að framangreindum skýrslum.

 

Með vísan til alls framangreinds er beiðni yðar um aðgang að ofangreindum skýrslum fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hafnað.“

 

Í bréfinu er jafnframt m.a. vakin athygli á kæruheimild til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

 

Framangreindar ákvarðanir Þjóðskjalasafns Íslands voru kærðar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál með bréfi, dags. 9. mars 2012.

 

Í kærunni segir m.a. orðrétt:

 

„Synjun Þjóðskjalasafns Íslands fær ekki staðist og rökstuðningur þeirra er í andstöðu við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga sem og ákvæða upplýsingalaga þ. á m. 7. gr. laga nr. 50/1996, rétt hefði verið að veita aðgang að skýrslunum, jafnvel þó að slíkur aðgangur hefði verið að hluta skýrslnanna. Hér að neðan verður þessari afstöðu gerð nánari skil.

 

[...]

 

Synjun Þjóðskjalasafns Íslands var byggð á því að skýrslur þær sem óskað var eftir væru sambærilegar að efni til þeirri skýrslu sem úrskurðarnefnd um upplýsingamál fjallaði um í máli nr. A-387/2011 og að þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki eigi við um skýrslurnar í heild sinni. Upplýsingabeiðandi er í ómögulegri aðstöðu til þess að meta efni skýrslunnar, en tók þó fram, í beiðni seinni um aðgang að upplýsingunum, að kæmi í ljós að hluti þeirra gagna eða hluti framburða einhverra einstaklinga lyti sérstakri lögmæltri þagnarskyldu á grundvelli 58. gr. laga nr. 161/2002 væri farið fram á aðgang með hliðsjón af 7. gr. laga nr. 50/1996.

 

Í samræmi við 7. gr. laga nr. 50/1996 ber að veita aðgang að þeim hluta skjals sem takmarkanir á upplýsingarétti eiga ekki við um. Þegar upplýsingar um viðskipta- og einkamálefni viðskiptavina, sbr. ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, er að ræða í skjali bæri stjórnvaldi því að afmá nöfn viðskiptavinanna og veita aðgang að skjalinu án þeirra auðkenna. Jafnvel þó að meirihluti skjals kunni að vera bundinn aðgangs takmörkunum á grundvelli upplýsingalaga breytir það í engu að aðgangur á grundvelli 7. gr. skuli leyfður. Þá verður að líta til þess að þrátt fyrir að stjórnvald telji þær upplýsingar sem ekki eru bundnar takmörkunum það veigalitlar eða í samhengi heildarskjalsins ekki þess eðlis að þær hafi þýðingu eða jafnvel tekur þá afstöðu að efni skýrslunnar á stöku stað lúti ekki þagnarskyldu að stjórnvald geti ekki tekið ákvörðun um að hafna aðgang að skjalinu í heild samhengisins vegna. Verður jafnframt að telja verulega ólíklegt að skýrslum sem sumar ná allt að 130 blaðsíðum að lengd sé engin hluti eða kafli sem þagnarskylda hvílir ekki á. Þá er eðlilegt að ítreka það að það er ekki stjórnvalds að meta hvort viðtakanda upplýsinganna þyki tilteknar upplýsingar veigalitlar. Þannig geta t.a.m. þær spurningar sem rannsóknarnefnd spurði einstaklinga við skýrslutöku haft mikla þýðingu fyrir upplýsingabeiðanda þó að svörin sem veitt voru kunni að lúta þagnarskyldu á grundvelli 58. gr. laga nr. 161/2002, jafnvel geta upplýsingar um að ákveðnar grunnstaðreyndir s.s. að viðkomandi einstaklingur hafi verið undirmaður einhvers annars einstaklings hjá vinnuveitanda sínum á ákveðnu tímabili verið mikilvægar fyrir upplýsingabeiðanda og jafnvel forsenda þess að upplýsingabeiðandi óski eftir gögnunum.

 

Að þessu sögðu er ítrekuð sú ósk að hinar kærðu ákvarðanir Þjóðskjalasafnsins verði endurskoðaðar og að veittur verði aðgangur að skýrslunum í heild eða a.m.k. þeim hluta skýrslnanna sem lúta ekki takmörkunum upplýsingalaga.“

 

Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 12. mars 2012, var Þjóðskjalasafni Íslands kynnt framkomin kæra og um leið gefinn frestur til að koma á framfæri frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Jafnframt var þess óskað að úrskurðarnefnd um upplýsingamál yrðu í trúnaði látin í té gögn málsins.

 

Athugasemdir kærða ásamt gögnum málsins bárust úrskurðarnefndinni með bréfi, dags. 23. mars 2012. Þar segir orðrétt:

 

„Eins og rakið er í bréfum Þjóðskjalasafns, dags. 10. febrúar sl. og 16. febrúar sl., til lög­fræðingsins hefur úrskurðarnefnd um upplýsingamál kveðið upp tvo úrskurði í málum sem varða aðgang að skýrslum sem einstaklingar gáfu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Annars vegar úrskurður í máli nr. A-387/2011 frá 25. nóvember 2011 og hins vegar í máli nr. A-398/2011 frá 29. desember 2011. Voru þessir úrskurðir hafðir til hliðsjónar við afgreiðslu þeirra skýrslna sem kæran lýtur að. Þjóðskjalasafn leggur áherslu á að almennt séð lúta upplýsingar í skýrslum þeim, sem synjað var um aðgang að með bréfum, dags. 10. og 16. febrúar sl., að umtalsverðu leyti að viðskiptum Kaupþings banka hf. við aðila sem tilteknir eru í skýrslunum og umræddir starfsmenn höfðu aðkomu að, að innri starfsemi Kaupþings banka hf. og að þáttum sem varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptalega hags­muni bankans. Að mati Þjóðskjalasafns er í fyrra tilvikinu um að ræða viðskiptamenn bankans í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og upplýsingarnar þess eðlis að þær falli undir framangreint þagnarskylduákvæði. Í seinna tilvikinu telur Þjóðskjalasafn, með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, að takmarka beri upplýsingarétt vegna einkahagsmuna. Þá eru einnig upplýsingar á stöku stað í skýrslunum sem varða einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem telja verður, með vísan til 5. gr. upplýsingalaga, að sanngjarnt og eðlilegt sé að leynt fari. Þó svo að efni skýrslnanna á einstökum stöðum falli ekki beint undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 eða ákvæði 5. gr. upp­lýsinga­laga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna, er það skoðun Þjóðskjalasafns að það verði, í ljósi efnis skýrslnanna og þess samhengis sem þessir efnisþættir skapa milli þeirra efnisþátta sem lúta fyrrgreindri þagnarskyldu og takmörkunum, að líta svo á að þagnarskyldan og takmarkanirnar eigi við um skýrslurnar í heild sinni. Vill Þjóðskjalasafn því árétta að, af ofansögðu virtu kom það ekki til álita af hálfu safnsins að veita aðgang að hluta skýrslnanna samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga.

 

Að þessu virtu og með vísan til 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008, 2. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga var það mat Þjóðskjalasafns að safninu væri óheimilt að veita aðgang að umræddum skýrslum.“

 

Með bréfi, dags. 30. mars 2012, kynnti úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæranda framangreinda umsögn Þjóðskjalasafns Íslands og gaf honum kost á að koma á framfæri athugasemdum í tilefni af henni. Viðbrögð bárust ekki frá kæranda.

 

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál ritaði þeim einstaklingum sem gáfu skýrslurnar, sem mál þetta lýtur að, bréf, dags. 23. apríl 2012 og 7. og 8. maí 2012. Í bréfunum óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu þeirra til beiðni kæranda um aðgang að skýrslunum. Öll lögðust þau gegn því að veittur yrði aðgangur að skýrslunum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki tilefni til að kynna kæranda þau svör, enda liggur fyrir afstaða hans til þeirra sjónarmiða sem þar koma fram.

 

Niðurstaða

1.

Eins og rakið er hér að framan lýtur mál þetta að lögmæti synjunar Þjóðskjalasafns Íslands á aðgangi að skýrslum tólf tilgreindra einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Kæranda var gerð grein fyrir synjun Þjóðskjalasafns með bréfum, dags. 10. og 16. febrúar 2012. Heimild kæranda til að kæra synjun Þjóðskjalasafns Íslands til úrskurðarnefndar um upplýsingamál er að finna í 14. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996.

 

Þær skýrslur sem úrskurður þessi lýtur að eru nánar tiltekið:

 

1. Skýrsla [B], frá 7. júlí 2009.

2. Skýrsla [C], frá 8. október 2009.

3. Skýrsla [D] og [E], frá 4. september 2009.

4. Skýrsla [F], frá 7. október 2009.

5. Skýrsla [G], frá 21. júlí 2009.

6. Skýrsla [H], frá 7. september 2009.

7. Skýrsla [I], frá 10. september 2009.

8. Skýrsla [J], frá 21. október 2009.

9. Skýrslur [K], frá 8. og 14. júlí 2009.

10. Skýrslur [L], frá 22. janúar og 7. febrúar 2010.

11. Skýrsla [M], frá 21. október 2009.

 

Viðstaddur og þátttakandi þegar fyrri skýrslan var tekin af [K], 8. júlí 2009, var jafnframt [N] hæstaréttarlögmaður

 

2.

Kærandi byggir heimild sína til að fá aðgang að skýrslunum einkum á 3. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Þjóðskjalasafnið byggir synjun sína um aðgang einkum annars vegar á 58. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki á grundvelli gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og hins vegar á 5. gr. upplýsingalaga.

 

Um störf rannsóknarnefndar Alþingis er fjallað í lögum nr. 142/2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. 17. gr. þeirra laga segir orðrétt:

 

„Að rannsókn nefndarinnar lokinni skulu gögn, sem aflað hefur verið vegna rannsóknarinnar, færð á Þjóðskjalasafn Íslands. Um aðgang að þeim fer samkvæmt ákvæðum upplýsingalaga.“

 

Tilvitnuðu ákvæði var bætt við frumvarp til laganna við þinglega meðferð þess að tilstuðlan allsherjarnefndar. Í áliti nefndarinnar sagði m.a.:

 

„Þá komu einnig fram ábendingar fyrir nefndinni um að í frumvarpinu sé ekki fjallað um hvernig háttað skuli varðveislu þeirra gagna sem aflað er vegna rannsóknarinnar og aðgangi almennings að þeim. Nefndin leggur því til að skýrt verði kveðið á um hvernig fari um þessi atriði og leggur til að við 17. gr. frumvarpsins verði bætt ákvæði sem fjalli sérstaklega um það að gögn skuli færð á Þjóðskjalasafn Íslands að störfum nefndarinnar loknum, sem og að um aðgang að þeim þar fari eftir ákvæðum upplýsingalaga.

 

Í framangreindu mundi m.a. felast að við ákvörðun Þjóðskjalasafns um veitingu aðgangs að umræddum gögnum yrði að meta hvort rétt væri að takmarka aðgang með vísan til 5. gr. upplýsingalaga um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Um aðgang að gögnum um slík málefni færi einnig eftir 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga þess efnis að takmarkanir á aðgangi að gögnum falli niður 80 árum eftir að þau urðu til. Við ákvörðun Þjóðskjalasafns um veitingu aðgangs að gögnum bæri og að virða ákvæði laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, þar á meðal ákvæði 7. gr. um sanngirni og meðalhóf.“ (Alþt. 2008-2009, A-deild, bls. 1567-1568.)

 

Með ákvæði 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 hefur löggjafinn með skýrum hætti kveðið á um að þau gögn sem rannsóknarnefndin aflaði vegna rannsóknar sinnar skuli færð á Þjóðskjalasafn Íslands og að um aðgang að þeim skuli fara eftir ákvæðum upplýsingalaga.

 

3.

Í 3. gr. upplýsingalaga segir orðrétt: „Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6. gr.“ Í 5. gr. laganna segir síðan: „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.“

 

Í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga er tekið fram að almenn ákvæði laga um þagnarskyldu takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt lögunum. Með gagnályktun frá þessu ákvæði verður hins vegar að telja að sérstök þagnarskylduákvæði geti, ein og sér, komið í veg fyrir að aðgangur verði veittur að gögnum í vörslum stjórnvalda hvað sem líður öðrum lagaákvæðum um upplýsingaskyldu. Þegar um er að ræða sérákvæði laga um þagnarskyldu, þ.e. þegar upplýsingar þær sem þagnarskyldan tekur til eru sérgreindar, fer það eftir „efni og orðalagi þagnarskylduákvæðis hvernig slík ákvæði verða skýrð og þýdd ákvæðum upplýsingalaga“ eins og segir í skýringum við 2. gr. frumvarps þess sem síðar varð að upplýsingalögum.

 

Í 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, eru ákvæði um þagnarskyldu. Í 1. mgr. 58. gr. segir:

 

„Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.“

 

Í 2. mgr. 58. gr. segir svo:

 

„Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.“

 

Samkvæmt síðast tilvitnuðu ákvæði flyst sú þagnarskylda sem kveðið er á um í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 yfir á þann sem veitir viðtöku þeim upplýsingum sem undir ákvæðið falla. Samkvæmt þessu er Þjóðskjalasafn Íslands bundið þagnarskyldu varðandi upplýsingar sem rannsóknarnefnd Alþingis færði safninu til varðveislu að því leyti sem þær falla undir 1. mgr. 58. gr. laganna..

 

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur að líta beri á tilvitnað ákvæði 58. gr. laga nr. 161/2002 sem sérstakt ákvæði um þagnarskyldu í skilningi 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga. Að því leyti sem í tilvitnuðu ákvæði eru ekki tilgreindar með beinum og skýrum hætti þær upplýsingar sem ber að gæta trúnaðar um verður þó að skýra það með hliðsjón af efni 5. gr. upplýsingalaga.

 

Eins og sjá má af texta 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 þá hvílir þagnarskylda á öllu því sem starfsmenn fjármálafyrirtækis fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns „og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess“. Samkvæmt orðalagi sínu veitir þetta ákvæði því ekki vernd gegn því að upplýsingar séu veittar er varða fjármálafyrirtækið sjálft, heldur aðeins viðskiptamenn þess.

 

Samkvæmt framangreindu verður að byggja á því að varði þær upplýsingar sem koma fram í þeim gögnum sem óskað hefur verið aðgangs að „viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna bankans“ geti þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002 átt við um þær. Að því leyti sem upplýsingarnar kunna að lúta að starfsmanninum persónulega eða bankanum sjálfum ber hins vegar að taka til skoðunar hvort beita eigi  ákvæðum 5. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna.

 

4.

Meginreglu upplýsingalaga um upplýsingarétt almennings er að finna í 3. gr. laganna. Þar kemur fram að stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem leiðir  af ákvæðum 4.-6. gr. laganna.

 

Í skýringum sem fylgdu frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum nr. 50/1996 kemur fram að aðgangur almennings að upplýsingum verði „almennt ekki takmarkaður á grundvelli ákvæða 5.-6. gr. nema að undangengnu mati stjórnvalds á því hvort hætta sé á að þeir hagsmunir, sem þar eru tilgreindir, skaðist ef upplýsingar eru veittar.“

 

Í 5. gr. upplýsingalaga segir orðrétt: „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á. Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.

 

Ákvæði 5. gr. upplýsingalaga felur í sér tvær mikilvægar undantekningar á upplýsingarétti almennings skv. 3. gr. laganna.

 

Í fyrri málslið ákvæðisins er mælt fyrir um það hvenær rétt sé að halda upplýsingum leyndum vegna einkahagsmuna einstaklinga. Ýmsar af þeim upplýsingum sem varða einkahagi einstaklinga eru þess eðlis að almennt ber að telja sanngjarnt og eðlilegt að þær fari leynt í skilningi 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga. Á það til dæmis við um þær upplýsingar sem skilgreindar eru sem viðkvæmar persónuupplýsingar í 8. tölul. 2. gr. laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Í ákveðnum tilvikum veltur það hins vegar á heildarmati á þeim upplýsingum sem um ræðir, gagnvart þeirri meginreglu sem birtist í 1. mgr. 3. gr. upplýsingalaga og tilgangi hennar. Í slíkum tilvikum verður að meta hvort vegi þyngra, hagsmunir viðkomandi einstaklings eða þeir hagsmunir sem meginreglu 3. gr. upplýsingalaga um aðgang almennings að gögnum er ætlað að tryggja.

 

Í 2. málsl. 5. gr. upplýsingalaga er kveðið á um að sömu takmarkanir skuli gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila. Við mat á því hvort ákvæðið eigi við þarf að líta til þess hvort um sé að ræða upplýsingar um svo mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækis, að ætla megi að þær séu til þess fallnar að valda því tjóni verði aðgangur veittur að þeim. Um beitingu ákvæðisins vísast nánar til fyrri úrskurða nefndarinnar, sbr. t.d. úrskurð í máli A-234/2006, en rétt er að árétta að við beitingu ákvæðisins verður jafnframt að meta hvort vegi þyngra, hagsmunir fyrirtækisins eða þeir hagsmunir sem meginreglu 3. gr. upplýsingalaga um aðgang almennings að gögnum er ætlað að tryggja, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar frá 23. mars 2000 í máli nr. 455/1999.

 

Hvað varðar þýðingu 2. málsl. 5. gr. upplýsingalaga tekur úrskurðarnefnd um upplýsingamál fram að enda þótt fyrirtæki sé í þrotameðferð eða undir stjórn skilanefndar er ekki loku fyrir það skotið að ákvæðið eigi við um upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni þess, enda sé enn um virka viðskipta- eða fjárhagshagsmuni að ræða. Verður við mat á því að líta til aðstæðna eins og þær eru í hverju tilfelli þegar óskað er aðgangs að upplýsingunum.

 

5.

Sú beiðni um aðgang að gögnum sem hér er til meðferðar lýtur að aðgangi að gögnum sem til urðu við starfsemi rannsóknarnefndar Alþingis sem starfaði á grundvelli laga nr. 142/2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Við beitingu ákvæðis 5. gr. upplýsingalaga í því máli sem hér um ræðir er til viðbótar við framangreind atriði nauðsynlegt að horfa jafnframt til ákvæða þeirra laga.

 

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 142/2008 var skylt að verða við kröfu rannsóknarnefndarinnar um að láta í té upplýsingar, gögn og skýringar sem hún fór fram á. Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. sömu laga var skylt að verða við kröfu rannsóknarnefndarinnar um að veita upplýsingar þótt þær væru háðar þagnarskyldu. Í 1. mgr. 8. gr. var sérstaklega tekið fram að sérhverjum væri skylt að koma fyrir nefndina til skýrslutöku krefðist hún þess. Brot á þeirri skyldu að veita nefndinni upplýsingar gat skv. 11. gr. varðað refsingu.

 

Eins og kunnugt er skilaði rannsóknarnefnd Alþingis skýrslu sem gerð var opinber í samræmi við ákvæði IV. kafla laga nr. 142/2008 þar sem birtar voru upplýsingar sem fram komu við skýrslutökur og nefndin taldi nauðsynlegt að almenningur hefði aðgang að. Í 4. mgr. 4. gr. laganna kemur fram að þagnarskylda nefndarmanna og þeirra er unnu að rannsókninni stóð því ekki í vegi að rannsóknarnefndin gæti birt upplýsingar sem annars töldust háðar þagnarskyldu, ef nefndin taldi slíkt nauðsynlegt til að rökstyðja niðurstöður sínar. Í  ákvæðinu kom fram að nefndin skyldi því aðeins birta upplýsingar um persónuleg málefni einstaklinga, þ.m.t. fjármál þeirra, að verulegir almannahagsmunir af því að birta upplýsingarnar vægju þyngra en hagsmunir þess einstaklings sem í hlut ætti.

 

Framangreind ákvæði laga nr. 142/2008, sem lúta að víðtækum skyldum einstaklinga til að láta rannsóknarnefnd Alþingis í té upplýsingar eru til þess fallin að hafa áhrif á mat á því hvort sanngjarnt sé, gagnvart þeim einstaklingum sem skýrslurnar veittu, að efni þeirra verði gert opinbert.

 

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur í þessu sambandi einnig horft til þess að af gögnum málsins ber, að mati nefndarinnar, að draga þá ályktun að þeim einstaklingum sem gáfu skýrslur fyrir rannsóknarnefndinni hafi gjarnan verið heitið trúnaði um upplýsingagjöf þeirra. Þótt þetta atriði, eitt og út af fyrir sig, standi ekki í vegi fyrir aðgangi almennings að skýrslunum, sem eins og áður segir ræðst af ákvæðum upplýsingalaga en ekki slíkum almennum yfirlýsingum sem fram hafa komið við skýrslutöku, telur úrskurðarnefndin að við mat á því hvort aðgangur skuli veittur að tilteknum upplýsingum, geti það haft áhrif ef þær hafa verið gefnar í trúnaði og þá einkum þegar ætla má að loforð stjórnvalds um trúnað hafi haft áhrif á upplýsingagjöf og það hvernig þeir einstaklingar sem í hlut áttu völdu að tjá sig um þá þætti er þeir voru spurðir um. Vísast um þetta m.a. til  úrskurðar nefndarinnar frá 29. ágúst 2012 í máli nr. A-443/2012 og úrskurðar nefndarinnar frá 10. nóvember 1997 í máli nr. A-28/1997.

 

6.

Af framangreindu má ljóst vera að ólíkar upplýsingar í einu og sama gagninu, í þessu tilfelli skýrslu sem gefin var fyrir rannsóknarnefnd Alþingis, geta fallið undir ólík lagaákvæði er tryggja misríkan aðgang almennings, allt eftir því um hvaða upplýsingar er að ræða.

 

Verður nú vikið að þeim einstöku skýrslum sem mál þetta lýtur að.

 

Skýrsla [B]

[B] gegndi starfi [...]. Hann gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 7. júlí 2009. Í skýrslunni greinir [B] frá persónulegri upplifun sinni af samskiptum við ýmsa samstarfsmenn, fulltrúa stjórnvalda, þ. á m. breska fjármálaeftirlitið, og mati sínu á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda við vanda íslensku bankanna. Að teknu tilliti til hagsmuna [B] ber að fella þessar upplýsingar undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Þá ræðir [B] jafnframt um einstaka viðskiptaaðila bankans, m.a. í tengslum við endurhverf viðskipti KSF. Þær upplýsingar eru þess eðlis að þær falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. síðarnefndu laganna, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að þessu leyti. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [C]

[C] var sérfræðingur í deild eigin viðskipta Kaupþings. Hann gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 8. október 2009. Í skýrslunni ræðir [C] um eigin viðskipti Kaupþings, þar á meðal um einstök félög sem Kaupþing keypti hlutabréf í. Þær upplýsingar eru þess eðlis að þær falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því með vísan til 2. mgr. 58. gr. síðarnefndu laganna, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að þessu leyti. Í skýrslunni ræðir [C] jafnframt um samstarfsfólk sitt í bankanum og þau vinnubrögð sem þar voru iðkuð. Að teknu tilliti til þeirrar lagaumgjörðar sem gilti um skýrslugjöfina fyrir rannsóknarnefnd Alþingis telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að með tilliti til hagsmuna [C] beri að fella þessar upplýsingar undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [D] og [E]

[D] var framkvæmdastjóri [...] Kaupþings og [E] var framkvæmdastjóri [...] hjá Kaupþingi. Þau gáfu saman skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 4. september 2009. Í skýrslunni, sem er 63 blaðsíður að lengd, ræða [D] og [E] um ýmsa aðila sem bankinn var í viðskiptum við. Þær upplýsingar eru þess eðlis að þær falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Jafnframt ræða þau opinskátt um starfsemi bankans, verklag og samstarfsmenn. Að teknu tilliti til þeirrar lagaumgjörðar sem gilti um skýrslugjöfina fyrir rannsóknarnefnd Alþingis telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að með tilliti til hagsmuna [D] og [E] beri að fella þessar upplýsingar undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [F]

[F] gegndi starfi forstöðumanns [...] Kaupþings. Hann gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 7. október 2009. Í skýrslunni fjallar [F] um nokkra af atkvæðamestu aðilunum á markaðnum á árunum fyrir fall bankans. Þá ræðir hann um stemninguna í bankanum og gefur m.a. álit sitt á launakerfi fyrirtækisins. Ennfremur svarar [F] spurningum um persónuleg fjármál sín. Það er niðurstaða úrskurðarnefndar um upplýsingamál að efni skýrslunnar falli undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [G]

[G] var [...] Kaupþings banka hf. við fall bankans í október 2008. [G] gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 21. júlí 2009. Í skýrslunni fjallar [G] um innri starfsemi bankans, upplifun sína af samskiptum við stjórnvöld, svo sem Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitið og ráðherra, sem og um samskipti sín við samstarfsmenn og aðra. Að teknu tilliti til þeirrar lagaumgjörðar sem gilti um skýrslugjöfina fyrir rannsóknarnefnd Alþingis telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að með tilliti til hagsmuna [G] beri að fella þessar upplýsingar undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Í skýrslunni er einnig vikið að samskiptum við einstaka viðskiptamenn bankans. Þær upplýsingar falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. þeirra laga, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að því leyti. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [H]

[H] gegndi starfi forstöðumanns [...] Kaupþings. Hún gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 7. október 2009. Í skýrslutökunni er [H] innt eftir persónulegri afstöðu sinni til ýmissa álitaefna tengdum innri endurskoðun bankans. Ræðir [H] í því sambandi samskipti innri endurskoðunar við stjórnendur bankans, ytri endurskoðendur og Fjármálaeftirlitið. Jafnframt ræðir hún um starfsaðstöðu innri endurskoðunar og ræðir opinskátt um innviði bankans. Að teknu tilliti til hagsmuna [H] telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að efni skýrslunnar falli undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [I]

[I] var [...] Kaupþings. Hún gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 10. september 2009. Í skýrslunni ræðir [I] um persónuleg samskipti sín við samstarfsfólk sitt í bankanum og gefur m.a. mat sitt á viðhorfum stjórnenda bankans til starfa regluvarðar og vinnubrögðum Fjármálaeftirlitsins. Að teknu tilliti til hagsmuna [I] telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að efni skýrslunnar falli undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 um takmarkanir á upplýsingarétti vegna einkahagsmuna. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrsla [J]

[J] var [...] hjá rekstrarfélagi Kaupþings. Hún gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis hinn 21. október 2009. Í skýrslunni ræðir [J] um samskipti sín við samstarfsfólk í bankanum, starfshætti sem og um persónuleg málefni fjölskyldu sinnar.  Að teknu tilliti til þeirrar lagaumgjörðar sem gilti um skýrslugjöfina fyrir rannsóknarnefnd Alþingis telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál að með tilliti til hagsmuna [J] beri að fella þessar upplýsingar undir 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Í skýrslunni ræðir [J] jafnframt um einstaka viðskiptamenn bankans. Þær upplýsingar eru þess eðlis að þær falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. síðarnefndu laganna, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að þessu leyti. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins einstaka hluta hennar.

 

Skýrslur [K]

[K] var [...] Kaupþings banka hf. við fall bankans í október 2008. [K] og [N] hæstaréttarlögmaður gáfu saman skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis þann 8. júlí 2009. [K] gaf jafnframt einn skýrslu þann 14. sama mánaðar. Beiðni um aðgang að gögnum lýtur að þessum tveimur skýrslum. Í þeim er fjallað um lán til einstakra viðskiptavina bankans og persónulega afstöðu [K] til viðskiptanna. Þar er einnig að finna upplýsingar um fjölmarga viðskiptavini bankans. Þessar upplýsingar falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. þeirra laga, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að því leyti. Í skýrslunum ræðir [K] einnig um persónuleg fjármál sín og stöðu innan bankans á meðan hann starfaði þar. Hann ræðir um samskipti sem hann átti við nafngreinda starfsmenn bankans á þessum tíma. Þá greinir [K] frá samskiptum sínum og annarra starfsmanna Kaupþings banka hf. við stjórnvöld og persónulegum samskiptum við nafngreinda embættismenn. Af tilliti til hagsmuna [K] eru þessar upplýsingar þess eðlis að sanngjarnt er og eðlilegt að þær fari leynt með vísan til fyrri málsl. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Í ljósi efnis skýrslanna og eiga takmarkanir á aðgangi að þeim við um skýrslurnar í heild en ekki aðeins hluta hennar.

 

Skýrslur [L]

[L] var framkvæmdastjóri [...] Kaupþings banka hf. við fall bankans í október 2008. Hann gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 22. janúar  og 7. febrúar 2010. Í skýrslunum er ítarlega fjallað um lán til einstakra viðskiptavina bankans. Þessar upplýsingar falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. þeirra laga, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni að því leyti. Að öðru leyti fela skýrslurnar í sér framburð [L] sem af tilliti til hagsmuna hans er sanngjarnt og eðlilegt að leynt fari skv. 1. málsl. 5. gr. upplýsingalaga. Í ljósi efnis skýrslanna og samhengis eiga takmarkanir á aðgangi við um þær í heild en ekki aðeins að hluta.

 

Skýrsla [M]

[M] starfaði á fyrirtækjasviði Kaupþings banka hf. við fall bankans í október 2008. Hún gaf skýrslu fyrir rannsóknarnefnd Alþingis 21. október 2009. Í skýrslunni er fjallað sérstaklega um viðskipti bankans við einn viðskiptavina hans. Þessar upplýsingar falla undir þagnarskylduákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Þjóðskjalasafni Íslands var því, með vísan til 2. mgr. 58. gr. þeirra laga, 5. mgr. 17. gr. laga nr. 142/2008 og gagnályktunar frá 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996, rétt að synja um aðgang að skýrslunni. Í ljósi efnis skýrslunnar og samhengis hennar eiga takmarkanir á aðgangi að henni við um skýrsluna í heild en ekki aðeins hluta hennar.

 

 


 
Úrskurðarorð

Synjun Þjóðskjalasafns Íslands á beiðni [A] um aðgang að eftirfarandi skýrslum er staðfest:

 

1. Skýrslu [B], frá 7. júlí 2009.

2. Skýrslu [C], frá 8. október 2009.

3. Skýrslu [D] og [E], frá 4. september 2009.

4. Skýrslu [F], frá 7. október 2009.

5. Skýrslu [G], frá 21. júlí 2009.

6. Skýrslu [H], frá 7. september 2009.

7. Skýrslu [I], frá 10. september 2009.

8. Skýrslu [J], frá 21. október 2009.

9. Skýrslum [K], frá 8. og 14. júlí 2009.

10. Skýrslum [L], frá 22. janúar og 7. febrúar 2010.

11. Skýrslu [M], frá 21. október 2009.


 

Trausti Fannar Valsson

formaður


 

Sigurveig Jónsdóttir                                                                                     Friðgeir Björnsson


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum