Hoppa yfir valmynd
9. október 1997 Forsætisráðuneytið

26/1997 - Úrskurður frá 9. október 1997 í málinu nr. A-26/1997

Hinn 9. október 1997 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu nr. A-26/1997:

Kæruefni

Með bréfi, dagsettu 24. september sl., kærði [...], synjun Ríkisútvarpsins, dagsetta sama dag, um að veita honum aðgang að greinargerðum um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins sjónvarps sem umsækjendum um það starf var gert að skila útvarpsráði.

Með bréfi, dagsettu 29. september sl., var kæran kynnt Ríkisútvarpinu og stofnuninni gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana og koma að frekari rökstuðningi fyrir hinni kærðu ákvörðun fyrir kl. 12.00 á hádegi hinn 6. október sl. Jafnframt var þess óskað að nefndinni yrðu látin í té sem trúnaðarmál ljósrit þeirra gagna, sem kæran lýtur að, innan sama frests.
Umsögn [...], f.h. Ríkisútvarpsins, dagsett 2. október sl., barst úrskurðarnefnd innan tilskilins frests ásamt eftirtöldum gögnum:

1. Greinargerð [...], dagsettri 18. september 1997.
2. Greinargerð [...], dagsettri 18. september 1997.
3. Greinargerð [...], ódagsettri.
4. Greinargerð [...], dagsettri 18. september 1997.
5. Greinargerð [...], dagsettri 19. september 1997.
6. Greinargerð [...], dagsettri 19. september 1997.

Elín Hirst vék sæti í kærumáli þessu. Tók Ólafur E. Friðriksson varamaður sæti hennar við meðferð málsins og úrskurð í því.

Málsatvik

Atvik máls þessa eru í stuttu máli þau að við meðferð umsókna um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins-sjónvarps ákvað útvarpsráð að leita eftir greinargerðum frá umsækjendum um viðhorf þeirra til starfsins. Með bréfi til útvarpsstjóra, dagsettu 23. september sl., óskaði kærandi eftir að fá aðgang að greinargerðum þessum með vísan til 3. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Útvarpsstjóri synjaði beiðni kæranda með bréfi, dagsettu 24. september sl., með vísan til 4. tölul. 4. gr. upplýsingalaga. Með bréfi, dagsettu sama dag, var synjunin kærð til úrskurðarnefndar.

Í umsögn umboðsmanns Ríkisútvarpsins, dagsettri 2. október sl., er þess krafist að ákvörðun útvarpsstjóra verði staðfest með vísan til 4. tölul. 4. gr. upplýsingalaga þar sem öll gögn, er varði umsóknir um störf hjá ríki eða sveitarfélögum, séu undanþegin upplýsingarétti almennings.

Aðilar máls þessa hafa fært frekari rök fyrir kærunni annars vegar og hinni kærðu ákvörðun hins vegar. Með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 verður ekki gerð frekari grein fyrir röksemdum þessum en úrskurðarnefnd hefur haft þær til hliðsjónar við úrlausn málsins.

Niðurstaða

Í 3. gr. upplýsingalaga segir orðrétt: "Stjórnvöldum er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál með þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6. gr." Skv. 4. tölul. 4. gr. laganna tekur réttur almennings til aðgangs að gögnum ekki til "umsókna um störf hjá ríki eða sveitarfélögum" né "allra gagna sem þær varða", að undanskildum upplýsingum um nöfn, heimilisföng og starfsheiti umsækjenda.

Af orðalagi 4. tölul. 4. gr. upplýsingalaga og athugasemdum, er fylgdu frumvarpi til laganna á sínum tíma, verður dregin sú ályktun að undantekningarákvæði þetta taki ekki aðeins til gagna, sem fylgja umsókn, heldur og til gagna, sem aflað er áður en ráðið er í störf hjá ríki eða sveitarfélögum, til þess að það stjórnvald, sem ræður í starfið, geti lagt mat á hæfni umsækjenda til að gegna því. Skiptir í því sambandi ekki máli hvort gögn þessi stafa frá umsækjendum sjálfum eða öðrum aðilum, né heldur hvað fram kemur í þeim, ef þeim er ætlað að veita upplýsingar til að auðvelda hlutaðeigandi stjórnvaldi að velja á milli umsækjenda.

Úrskurðarnefnd hefur kynnt sér greinargerðir þær, sem kærandi óskar að fá aðgang að, og telur að þær falli undir 4. tölul. 4. gr. upplýsingalaga, enda var þeirra aflað og þær lagðar fyrir útvarpsráð sem á grundvelli 6. mgr. 21. gr. útvarpslaga nr. 68/1985 er ætlað að gera tillögu um ráðningu á fréttastjóra Ríkisútvarpsins sjónvarps til útvarpsstjóra. Með skírskotun til þess verður sú ákvörðun Ríkisútvarpsins að synja kæranda um aðgang að greinargerðunum staðfest.

Úrskurðarorð:

Staðfest er sú ákvörðun Ríkisútvarpsins að synja kæranda um aðgang að greinargerðum um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins sjónvarps sem umsækjendum um það starf var gert að skila útvarpsráði.

Eiríkur Tómasson, formaður
Ólafur E. Friðriksson
Valtýr Sigurðsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum