Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2001 Forsætisráðuneytið

A-124/2001 Úrskurður frá 10. ágúst 2001

ÚRSKURÐUR



Hinn 10. ágúst 2001 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð í málinu nr. A-124/2001:

Kæruefni

Með símbréfi, dagsettu 19. júlí sl., kærði […], fréttamaður, f.h. […], synjun Framkvæmdasýslu ríkisins, dagsetta 17. júlí sl., um að veita honum aðgang að sundurliðuðu yfirliti um kostnað vegna framkvæmda við Þjóðleikhúsið á árunum 1996–1998.

Með bréfi, dagsettu 20. júlí sl., var kæran kynnt Framkvæmdasýslu ríkisins og stofnuninni veittur frestur til að lýsa viðhorfi sínu til hennar til kl. 16.00 hinn 30. júlí sl. Ennfremur var þess óskað að úrskurðarnefnd yrðu látin í té sem trúnaðarmál afrit þeirra gagna, sem kæran lýtur að, innan sama frests. Umsögn Framkvæmdasýslunnar, dagsett 30. júlí sl., barst nefndinni þann dag ásamt ljósriti af hinum umbeðnu gögnum.

Málsatvik

Kærandi óskaði eftir því við Framkvæmdasýslu ríkisins með tölvubréfi, dagsettu 17. júlí sl., að fá sundurliðað verkyfirlit frá stofnuninni um kostnað vegna framkvæmda við Þjóðleikhúsið frá og með árinu 1996 til þess dags. Í svari Framkvæmdasýslunnar, dagsettu samdægurs, segir orðrétt: "Þar sem Ríkisendurskoðun hefur nú hafið rannsókn á þessu máli hefur hún farið fram á að Framkvæmdasýslan láti engum öðrum í té gögn úr bókhaldi stofnunarinnar. – Við virðum þessa beiðni Ríkisendurskoðunar og getum því ekki orðið við beiðni þinni."

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar, dagsettri 19. júlí sl., tók kærandi fram að hluti hinna umbeðnu gagna hefði verið afhentur honum, fyrir milligöngu ríkisendurskoðanda. Um væri að ræða gögn frá árunum 1999–2001, en beðið hefði verið um gögn fyrir árin 1996–2001.

Eins og mál þetta er vaxið, er ekki ástæða til að gera grein fyrir umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins til úrskurðarnefndar, dagsettri 30. júlí sl. Með vísun til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, hefur nefndin haft þær röksemdir, sem þar koma fram, til hliðsjónar við úrlausn málsins.

Í tilefni af þessu kærumáli sem og öðrum kærumálum, sem lotið hafa að synjun stjórnvalda um að veita aðgang að gögnum, tengdum byggingarframkvæmdum við Þjóðleikhúsið og byggingarnefnd leikhússins, ákvað úrskurðarnefnd að senda ríkissaksóknara svofellda fyrirspurn með bréfi, dagsettu 31. júlí sl.: "Í fréttum hefur verið greint frá því að þér, herra ríkissaksóknari, hafið lagt fyrir lögreglu að hefja opinbera rannsókn á máli sem varðar m.a. byggingarframkvæmdir við Þjóðleikhúsið og byggingarnefnd leikhússins. Þar sem í 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996 er tekið fram, að lögin gildi ekki um rannsókn eða saksókn í opinberu máli, er þess virðingarfyllst farið á leit við yður að þér staðfestið að umrædd rannsókn sé hafin, t.d. með því að láta úrskurðarnefnd í té sem trúnaðarmál ljósrit af bréfi yðar til ríkislögreglustjóra sem vísað hefur verið til í fréttum. Ennfremur er þess óskað að þér eða ríkislögreglustjóri upplýsi nefndina um það hvort þau gögn, sem fyrrgreind kærumál lúta að, verði eða kunni að verða tekin til skoðunar vegna rannsóknarinnar, svo og hversu langt aftur í tímann rannsóknin muni eða kunni að ná."

Í svarbréfi ríkissaksóknara, dagsettu 3. ágúst sl., er eftirfarandi tekið fram: "Með bréfi, dagsettu 27. f.m. var efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans falið að hefja lögreglurannsókn á ætluðum refsiverðum auðgunarbrotum [A] í tengslum við vöruúttektir hans í nafni byggingarnefndar Þjóðleikhússins. Að beiðni nefndarinnar fylgir hér með ljósrit af því bréfi. – Ætla má að þau gögn sem fyrrgreind kærumál lúta muni verða til skoðunar við lögreglurannsókn málsins. Ekki þykir fært á þessu stigi að segja til um hversu langt aftur í tímann lögreglurannsókn muni ná, það mun að einhverju leyti ráðast af því sem athugun ríkisendurskoðunar á fjármála- og umsýslustörfum [A] leiðir í ljós."

Niðurstaða

Í niðurlagi 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga segir að lögin gildi ekki um "rannsókn eða saksókn í opinberu máli." Þótt yfirlit það um kostnað vegna framkvæmda við Þjóðleikhúsið á tilteknu árabili, sem kærandi hefur óskað eftir aðgangi að, hafi ekki verið afhent lögreglu eða ákæruvaldi hefur því verið lýst yfir af hálfu ríkissaksóknara að ætla megi að það verði til skoðunar við rannsókn lögreglu á ætluðum refsiverðum auðgunarbrotum fyrrverandi formanns byggingarnefndar leikhússins. Þar eð sú rannsókn er nú hafin verður synjun um aðgang að umræddu yfirliti ekki kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál skv. 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 2. gr. laganna. Ber því að vísa máli þessu frá nefndinni.

Úrskurðarorð:

Kæru […], f.h. […], á hendur Framkvæmdasýslu ríkisins er vísað frá úrskurðarnefnd.


Eiríkur Tómasson, formaður
Valtýr Sigurðsson


Sérálit Elínar Hirst

Ég undirrituð er ósammála meirihluta úrskurðarnefndar um þá túlkun á niðurlagi 1. mgr. 2. gr. upplýsingalaga sem fram kemur í niðurstöðu úrskurðarins. Ég tel ekki rétt að synja um aðgang að hinum umbeðnu gögnum þar sem ekki er hægt að ráða það af svari ríkissaksóknara frá 3. ágúst sl. hvort umbeðin gögn verði tekin til rannsóknar eður ei.
Elín Hirst

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum